Auglýsing

Könnun

Stóđstu viđ áramótaheitin?

Linkar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Hátíđirnar yfirstađnar

09. janúar 2007 klukkan 04:11
Jæja þá eru jólin og áramótin búin og skólinn hefst á ný.
Var andvaka fyrir fyrstu tvo dagana í skólanum :S, samt var ég nú ekkert stressaður.
Var í partýi í Fossvoginum um áramótin, en heima með fjölskyldunni um jólin.
Fékk 50. þús kall hlutabréf og eiginlega ekkert annað. Föt.

BOOM!

Alltaf gaman að sprengja! Ekki satt ?

Kveðja, Melur

Hermigervill - Happy Hip Hop
Sigurđur
Engin athugasemd

BÚINN !!!

14. desember 2006 klukkan 19:11
Image Hosted by ImageShack.us

Búinn í prófum !!! Love it.
Lokisins getur maður gert eitthvað sem maður vill. Held ég fari að semja tónlist (Fruity loops?).
Við Matti fengum okkur kaffibolla á Café Blué eftir að prófinu var lokið til að halda upp á þessa fagnaðarstund.
Náttúrufræðin var skítlétt. Yfirlit: Kláraði bara enskuna og náttúrufræðina á tíma, í hinum var allt of stuttur próftími.

Powerman 5000 - Nobody's Real
Sigurđur
1 athugasemd

EITT EFTIR

14. desember 2006 klukkan 05:36
Eitt próf eftir: Náttúrufræði. Létt. Rúlla þessu upp eins og þú sért að búa til kanilsnúðadeig.

Daft Punk - Alive
Sigurđur
Engin athugasemd

Long time, no see

27. nóvember 2006 klukkan 04:39
Já, vá hvað það er langt síðan ég bloggaði seinast. Hvað 20 dagar eða meira.
Ekki skrítið enda hef ég alveg ótrúlegt að gera. Lokapróf framundan, nýbyrjaður að vinna í Húsasmiðjunni og beltapróf í Taekwondo eftir lokaprófin. Auðvitað er margfalt meira að gera en venjulega í skólanum þegar lokapróf eru framundan.
Fyrsta prófið er í STÆ203, tvöföld hraðferð... Verð að fá frí í vinnunni á sunnudaginn sem er á undan...
Ætlaði að reyna taka tvö próf í Taekwondo en held það gangi ekki... Ég næ ekki að æfa fyrir bæði almennilega... Afhverju í andskotanum eru beltaprófin á sama tíma og lokaprófin í skólanum ????!?!?! Öskrandi
Eins og ég sagði þá er helvíti mikið að gera... Spurning hvort maður nái að klára allt.
Þar til næst,
...

Mogwai - Hunted By A Freak
Sigurđur
Engin athugasemd

Helgin hjá mér

05. nóvember 2006 klukkan 18:49

Yegsemesh, já helgin var skemmtileg.

Á föstudagskvöldið þá fór ég til Magga og við fórum til Hlynsa og borðuðum ís. Restin af drengjunum var í einhverju partíi í Garðabæ or som. Svo fórum við til Magga og horfðum á Constantine og tvo þætti sem fjölluðu líka um helvíti og himnaríki. Við borðuðum meiri ís.

Laugardagurinn byrjaði á því að fara með Matta í bíó á Borat (mæli með henni). Einn og hálfur tími í strætó og einn og hálfur tímí í bíó. Við ætluðum að hitta fólk af borðinu okkar í MH en það sýndi sig ekki, enda var salurinn var troðfullur... Fólkið var örugglega einhverstaðar þarna.

Síðan skaust ég til Benna með drykkjarföng og við strákarnir skemmtum okkur þar. Ætluðum bara að chilla, vera í singstar og gera vitlausa hluti en svo skýtur Arndís upp kollinum. Kynsvall!
Við vorum nú allir hátt uppi og útskúrkaðir af greddu en það varð nú ekkert úr, hún þurfti að fara klukkutíma seinna. Og já, yngri systir hans Benna og vinkonur hennar voru þarna vitni af fíflalátunum í okkur :')

Nú er Sunnudagur og ég ætla að fara í bæinn að kaupa jakka/úlpu ef það er þá opið á sunnudögum, svo ætla ég kannski að fá hring í eyrað. Hver veit?

Death Cab for Cuite - I Will Follow You into the Dark

Sigurđur
Engin athugasemd

Músík

22. október 2006 klukkan 05:06
Ljúfir tónar til að létta lesturinn!
Ég bjó til lagið og þennan takka!

DJ Smali - On Repeat (Lagið sem heyrist núna)

Sigurđur
Engin athugasemd

Vetrarfrí

07. október 2006 klukkan 21:05

Vetrarfrí... Lítið að segja um það.
Ætlaði í partý í gær og hvað haldiði að hafi komið upp á? Ég þarf að smala í fyrsta skipti á ævi minni. Það var bóndi sem féll frá, en hann var vanur að sjá um að smala á okkar sumarbústaðslóð. Hann var lénsmaður og við lénsherrar. Nú þurfum við framvegis að smala.
Eitthvað varð maður nú að gera í staðinn svo ég hékk bara með Benna og Gumma... Við fórum út í sjoppu og horfðum á myndina "Guess Who?"... Hún og "Jeff Who" tengjast ekki neitt. Myndina horfðum við á í litlum skjá sem var í svona fjögurra metra fjarlægð, allur frekar dofinn eftir að horfa þannig á mynd. Ekki bara það heldur var einhver bólga í munninum á mér að stækka og ég farinn að fá höfuðverk af henni. Hún stækkaði bara þegar ég kom heim og var orðið eins og kýli í góminum á mér þegar ég ætlaði að fara sofa. Þrýsti eitthvað á höfðukúpuna svo að höfuðverkurinn dúndraði eins og á bassatrommur. Eftir að vera andvaka í 2klst+ þá tók tvö stykki parasetamol verkjatöflur og sofnaði hálftíma seinna. Þá var nú ekki ætlast af mér að fara smala. Þurfti ekki að vakna snemma heldur fékk að sofa út og nú er bólgan horfin. Vel sloppið.
Gítar í dag... Djamm í kvöld? Ávallt opinn á msn.

Ávallt á MSN

Ég verð að skella inn fleiri myndum hérna.
Fixaði þessa til í paint. Vent frekar en MSN samt.

Bob Marley - I'm A Rainbow Too (Fatboy Slim remix)

Sigurđur
2 athugasemdir

R.I.P Hatur

06. október 2006 klukkan 19:37

Jamm, hin síðan farin niður, www.hatur.bloggar.is.
Maggi og Gummi voru eitthvað fúlir yfir því að við skrifuðum svo lítið og stofnuðu sína eigin síðu, www.tveirkettir.bloggar.is, sem var náttúrlega alveg rétt hjá þeim... Þeir voru einu sem skrifuðu eitthvað inná. Synd... Þetta var farin að verða fín og drepfyndin síða.
Nú mundu sumir halda að ég hafi lítið bloggað á hatur útaf þessarri síðu, en viti menn, ég blogga ekkert mikið hér heldur, hehe.
Þegar ég sá í personal message hjá Magga "tveirkettir" þá hélt ég fyrst að Maggi væri byrjaður með Ísabellu og orðinn eitthvað ótrúlega væminn en sú var nú ekki raunin. Svo eiga þeir hvorugir ketti :)
Vá hvað þeir skrifa samt mikið!
R.I.P Hatur

Basshunter - Vi Sitter I Ventrilo Och Spelar Dota (Extended Version)

Sigurđur
Engin athugasemd

Skólinn

22. september 2006 klukkan 17:58
Jæja, eins og á eftir að koma fyrir oftar, þá er langt síðan ég bloggaði seinast. Núna er ég niðri í MH í eyðu og hef til tilbreytingar ekkert að gera í eyðunni.
Það er búið að vera líf og fjör og maður kynnist fólkinu betur og betur.
Ég mætti á leiklistaræfingu í gær það var helvíti mikið stuð, beint í æð. Þemað var draugasögur og ég skáldaði einhverja upp fyrir hópinn sem ég var í, sem við lékum síðan. Ég lék náttúrulega vonda kallinn, hehe. Stærstu félagslífshóparnir eru semsagt annaðhvort leikfélagið eða kórinn. Ég hef ekki yfirburðamikla sönghæfileika, ennþá, svo ég valdi leikfélagið. Annars þá eru margir sem eru í báðum félögum en það gengur ekki þar sem ég er í Taekwondo líka. Æfingarbúðir í gangi í Taekwondo núna, danskur meistari mættur til að halda æfingar.
Og já, alveg rétt, það er líka föstudagur núna... Ég ætti kannski bara að reyna blogga allavega á hverjum föstudegi.

Ampop - Precious
Sigurđur
Engin athugasemd

Ahhh Föstudagur

01. september 2006 klukkan 22:55
Alltaf gott þegar Helgi kemur. Hann kemur yfirleitt í enda vikunnar og gistir í svona tvo daga.
Já, það er sko frábært í MH. Kynnist nýjum á hverjum degi og þessi stéttaskipting er bara eins og áskorun á mann. Lítill tími hefur unnist til að blogga. Muna: Roktónlist.
Allt í botn! Núna strax! Fokkin brjálaður!...  quote: Rusli, stóri bró Magga

Apollo 440 - Heart Go Boom
Sigurđur
Engin athugasemd